17júní

Blogga er ennþá töff!

jeeejjeee...meka fjör í Finnlandi :Þ... Nánar
17. júní 2009 klukkan 17:45
Rebekka Unnarsdóttir
Engin athugasemd
26júlí

Góðan og gleðilegan laugardag!

Af mér er allt gott að frétta. Er bara alltaf vinnandi sem er bara fínt mér leiðist allavana ekki. Þegar ég fæ smá breik frá vinunni er reynt að nýta tíman í eitthvað skemmtilegt svo sem í rómó göngur, fjórhjólaferð, ís át, vídeó gláp, túristað, tónleika og ísgöngu í Skaftafelli. Það er svo margt hægt að gera.  Annars er ég voða happy en sakna samt sólarinnar sem hefur ekkert komið hingað á Höfn. Sólarlaust sumarÓákveðinn Styttist óðum í haustið og skólann. Er svona eiginlega farinn að hlakka smá til að byrja í skólanum svona fá smá "slökun". Ég hef voða lítið að segja ykkur, allt morandi í sætum túristum en ég haga mérHlæjandi

Hér koma nokkrar nýjar og gamlar myndir Brosandi

ég fyrir 4 árum
ég fyrir nákvæmlega 4 árum, eitthvað breyst?

Fjórhjólaferð
Skeltum okkur í fjórhjólaferð um daginn í vinnunni Brosandi

ísganga
Skeltum okkur í skaftafell í ísklifur en fórum óvart í ísgöngu Óákveðinn

Bekkita "camper" kveður að sinnaKoss
26. júlí 2008 klukkan 17:31
Rebekka Unnarsdóttir
2 athugasemdir
16júlí

Hæ hæ!!!Héðan af Höfn er allt ljómandi að frétta. Sólskin hér alla daga eða svona ímynduð ;) Hér er stanslaust fjör og gleði. Fórum í gær í fjörhjólaferð sem var geggjað fjör og svo miðnætur göngu með nokkra túrista af tjaldstæðinu. Við látum okkur ekki leiðast ;)Síðan síðast þá er Humarhátíðin afstaðin og það var mikið fjör, mikið unnið og farið á ball. Örvar „bró“ kom í heimsókn og hann heillaði allt starfsfólkið uppúr skónum og útlendingana líka, er ekki með tölu af símanúmerunum sem hann fékk en þau voru ansi mörg, búinn að vera að læra „systu“ sinni ;)Annars er ég vinnandi alla daga nánast 10-12 tíma á dag og svo reynt að gera eitthvað tíu um kvöldin eftir vinnu svosem að fara í göngu. Ég hef ekkert mikið að segja við ykkur þannig ég ætla bara slútta þessu bloggi enda ég svo busy... sólsetur
Sólsetur á Höfn


Humarhátíð 
Mikið stuð á Humarhátíð


Bekkita kveður að sinna á Höfn ;)
16. júlí 2008 klukkan 17:09
Rebekka Unnarsdóttir
1 athugasemd
21júní

Já sæll!!!   Hef loksins fundið mér tíma til að láta vita af mér. Er svo rosalega busy hérna á Höfn að vinna, flurta og tala útlensku. Ég er búinn að sjá nokkra sykurpúða sem eru alveg verðugir að fara í sleik við en ég er svo fagmannleg að ég geri ekkert svoleiðis við viðskiptavini mína, væri eins og að fara í sleik við kennara sinn sem er reyndar töff en ekki fagmannlegt ;) Ég vil vera svoldið professional í jobi mínu enda er ekkert annað í stöðunni hér. Á þessari stundu sit ég í afgreiðslunni og bíð eftir að einhver komi svo ég geti flurtað eða fengið upplýsingar eða jafnvel bara rétt mér pening. Ég hef það leyfi frá sjálfum mér að væblast á netinu því ég bossinn í dag, í gær og á morgunn.  Þetta er helst að frétta frá Höfn en ég fer til Reykjavíkur á morgun og svo fimm daga plöntugreininganámskeið á Hvanneyri. Er á eilífðum þeytingi landshornanna á milli. Svo kemur Lenka 3. júlí og humarhátíðin byrjað 4. júlí, ég get reddað góðum prís að tjalda ef þig langar að koma bara blikka mig og kannski ég geri eitthvað skemmtilegt fyrir þig.  Enn svo komið er leggst þetta sumar 2008 bara vel í mig. Ætla að reyna að fara allavana í eitt road tripp annars er það bara unnið út í eitt og haft gaman. 

Á meðan ég skrifaði þetta blogg komu fjórir til mín í afgreiðsluna og fékk pening hjá þeim öllum og tveir krakka gríslingar að fikta í minjagripunum og tvær gellur að fá upplýsingar, jamm er mjög busy girl.

 Ætla að slútta þessu bloggi með góðum myndum síðan sumarið 2007 ;)

Ég og lenka
Ég og Lenka í stuði

sund
Lenka og ég að baða okkur rétt fyrir utan Húsavík

ís
Fengum okkur svo ís í Húsavík eftir góða hvalaskoðun og heimsókn í typpa-safnið.

Geysir
Við hjá Geysi

Gullfoss
Skvísurnar hjá Gullfossi í lok sumarsins

menningarnótt
Sumarið endað með að fara á menningarnótt og eftir það skyldust leiðir okkar.


Bekka boss kveður að sinni með fullar hendur að gleði
21. júní 2008 klukkan 16:37
Rebekka Unnarsdóttir
4 athugasemdir
06júní

kominn júní

Komið sæl og blessuð!!!

Búið að vera svo mikið að gera hjá mér að hef bara hreinlega ekki haft tíma né orku til að blogga. Það helsta sem upp er í lífi mínu er að ég er núna í Rifinu á sjó með pabba og fer síðan austur í næstu viku. Sumarið komið á bullandi skrið sem er bara stuð. Um síðustu hlegi fór ég til Vestmannaeyja. Ákvað að taka bara þjóhátíðina snemma í ár. Ég var reyndar bara ein í dalnum en ég var með ipodinn meðferðis og Hemmi skemmti mér konunglega og appelsín flaskan í gleri stóð fyrir sínuGlottandi 

Hér koma nokkrar myndir úr daglega lífi mínu:

Ég og Rut
Ég og Rut að skemmta okkur á Ölveri.

Ég og Steina
Ég og Steina í eyjum

Ég
Ég á leið á sjóinn

Dóra
Dóra á sjónum


Bekkan kveður að sinni úr Rifinu þar sem best er að vera Hlæjandi

06. júní 2008 klukkan 19:59
Rebekka Unnarsdóttir
2 athugasemdir
21maí

Tilraun númer ég veit ekki hvað

Góða kvöldið!

Jæja þá ætla ég að gera enn aðra tilraun til þess að halda út bloggsíðu. Ég hef mjög góða tilfinningu á þetta eigi bara eftir að vera gaman en jæja hvað er að frétta??

Af mér er allt gott í fréttum enda ekki annað hægt, sumarið er að koma og svona. Hef yfirgefið Hvanneyri en fer aftur þangað í haust. Hvanneyri er bara gaman að búa eða svona oftast. Fer bráðum að líða að því að ég fer austur á land að tjaldvarðast. Ég farinn að hlakka til að hitta Lenku mína, blikka sveitta útlendinga, sjamera alla með útlensku minni og flurta. Jiii...hvað þetta sumar verður spennó Glottandi
sumarað 2007
Lenka og ég sumarið 2007

En áður en ég fer austur er sjórinn fyrst í nokkra daga, jebb stúlkan er orðinn svo stór og þroskuð og kallinn treystir henn með á sjóinn. Hlakka líka mikið til þess, alltaf gaman að bæta skemmtilegum stöfum á starfsferilskrána.
sjó
Pabbi og ég ansi góð saman á grásleppunni

Ég get nú sagt ykkur það að það er ansi margt sniðugt í Borgarfirðinum. Sá svoldna sniðuga útfærslu á klósetti eða kamri. Hann er rosalega opinn, loftar vel og hluti af umhvefinu.

klósett
Skemmtileg útfærsla en held samt að rokið á mikin þátt í þessu Glottandi

En ætla slútta þessari færslu....verið góð þanga til næst Brosandi

kveðja
Becky Burns
21. maí 2008 klukkan 22:27
Rebekka Unnarsdóttir
2 athugasemdir
17maí

byrjun...

VÆTANLEGT!!!! 

INNAN ÖRFÁRRA DAGA....HALDIÐ Í YKKUR....ER Á LEIÐINNI....TAKE IT EASY ;)

ER SPENNAN AÐ FARA MEÐ ÞIG???




Sumarið er að koma og tilvalinn tími til þess að byrja blogga ;)



17. maí 2008 klukkan 00:23
Rebekka Unnarsdóttir
1 athugasemd
17maí

C

M
17. maí 2008 klukkan 00:14
Rebekka Unnarsdóttir
Engin athugasemd
17maí

A

A
17. maí 2008 klukkan 00:14
Rebekka Unnarsdóttir
Engin athugasemd
17maí

B

I
17. maí 2008 klukkan 00:13
Rebekka Unnarsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Rebekka Unnarsdóttir
  • Staður: Rif/Hvanneyri/kópavogur/Höfn
  • Atvinna: nemi í umhverfisskipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Tjaldstæðisvörður á sumrin ;)
  • Hjúskaparstaða: á lausu
  • Um mig: hress og saklaus hnáta
  • Annað: ég elska bjór og meiri bjór

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan